Kennsluhættir
Í Suðurhlíðarskóla fer fram samkennsla árganga í litlum hópum þar sem fjöldi nemenda í hverjum árgangi stjórnar fjölda árganga í hverjum bekk. Hver bekkur telur að jafnaði 10-17 nemendur, meginreglan er sú að fjöldinn fari ekki yfir 16 nemendur í bekk en stundum þarf að gera undanþágu á því ef aldurshópurinn eru fjölmennari en 8.
Kennslan er skipulögð sem hefðbundin bekkjarkennsla þar sem nemandi tilheyrir bekk og umsjónarkennara. Mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, sem gengur vel upp í smáum nemendahópum sem okkar.
Með því að smella á hvern hóp fyrir sig má finna helstu upplýsingar um þá; bekkjarstærðir, kennara, kennslufyrirkomulag o.fl.
Skapandi vinnustofur
Í vinnustofum vinnum við samkvæmt stefnu skólans um einstaklingsmiðað nám, rannsóknarvinnu nemenda og skapandi skólastarf. Reynt er að hafa allar vinnustofur hópa á sama tíma í stundatöflu til að efla samstarf kennara og samvinnu nemenda og vægi er sett á áhugasviðsverkefni. Gert er ráð fyrir að nemendur halda reglulega kynningar fyrir foreldra, sem er bæði góð þjálfun fyrir þau og styrkjandi fyrir tengsl skóla og foreldra. Vettvangsferðir eru reglulegur þáttur í vinnustofum. Farið er á bókasafnið í Hamraborg eða Kringlunni, í fjöruna og skóginn í Öskjuhlíðinni. Einnig er farið á söfn, garða og fjörur þar sem dýralífið er rannsakað. Oft er hægt að ganga en annars tökum við yfirleitt strætisvagn.
Útinám
Staðsetning skólans hér í Reykjavík er einstök. Við erum í nálægð bæði við fjöruna og grenndarskóginn okkar og höfum ágætis möguleika til útræktunar á skólalóðinni. Nemendur njóta þess fram í fingurgóma að vinna vorverkin bæði í útiræktuninni og í grenndarskóginum í Öskjuhlíðinni. Eins nýtum við fjöruna, Fossvogsdalinn og fleiri staði í nálægð eða fjarlægð frá skólanum.
Þetta er eitthvað sem við viljum vissulega halda áfram að þróa.
Nemendur og starfsfólk skólans eru einnig duglegir að nýta fjölbreytta útivistarmöguleika svæðisins. Mið- og unglingastig ganga/hlaupa reglulega míluna. Þetta er ekki bara tími fyrir alla að hreyfa sig heldur einnig til að kynnast og ræða saman fyrir utan skólann.
Samfélagsþjónustunám
Samfélagsþjónustunám er áberandi í skólanum og taka nemendur og starfsfólk skólans þátt í skemmtilegum samfélagslegum verkefnum á hverju skólaári.
Það hefur gefið nemendum og starfsfólk mikið að fá að taka þátt í verkefnum í samfélagsþjónustu og okkur þykir mikilvægt að staldra við, líta í kringum okkur og gefa þeim gaum sem minna mega sín. Við tökum þátt í 3 samfélagsverkefnum á hverju ári. Það fyrsta er fjársöfnun fyrir börn sem komast auðveldlega í skóla annars staðar í heiminum. Það annað er Jól í skókassa sem KFUM og K halda utan um. Það þriðja er innanlandsverkefni sem yfirleitt snýst um að hjálpa fólki sem er illa statt.
1. – 4. bekkur
5. bekkur
6. – 8. bekkur
9. og 10. bekkur