Útikennsla
Það er heldur betur líf og fjör á skólalóðinni okkar þessa dagana, því nánast allir tímar eru útikennsla. Við erum svo þakklát fyrir sólina og góða veðrið sem leikur við okkur (þolum alveg nokkra dropa og léttan andvara inn á milli sólargeislanna) og við erum alveg svakalega þakklát fyrir Óla skóg, sem mætir til okkar dag eftir dag og kennir nemendum og kennurum að kljúfa við, tálga, hirða um skóginn og græða upp.
Hér eru nokkrar myndir af því sem við höfum verið að gera, því til viðbótar við skógarfræðslu og trjávinnslu höfum við m.a. tínt rusl, farið í útistærðfræði og bakað víkingabrauð úti.
Á morgun birtum við svo myndir af holunni okkar og segjum frá henni… þið megið vera spennt!


