Náttúruleikar í lok útikennsluviku
Í dag fögnuðum við lokum einstaklega vel heppnaðar útikennsluviku með Náttúruleikunum, sem voru í boði Steinunnar og 6.-8. bekkjar. Hugmyndin að Náttúruleikunum var að skapa skemmtilegar þrautir sem nemendur gætu leyst saman (flestar úti), í smáum hópum.
Krakkarnir lögðu mikla vinnu í að búa til alls kyns þrautir; smíðuðu stultur, söguðu út hringi í tréspjald sem skutlur svifu gegnum, negldu skálar á spjald sem átti að hitta í með baunapokum og ýmislegt annað sniðugt. Nemendur skólans fóru svo á milli stöðva, söfnuðu stigum, og allir voru sigurvegarar og fengu ís að launum fyrir þátttökuna.


