Skólabyrjunarfögnuður

Okkur fannst upplagt að nýta sólina sem skein á okkur í dag til að fagna því að vera komin aftur í skólann. Steinunn kennari stóð fyrir brekkusöng, við kveiktum eld á útipönnunum okkar og þeir sem vildu fengu að grilla sykurpúða. Tilraunir voru gerðar með að grilla gulrætur, kartöflur og hnúðkál úr grænmetisgarðinum okkar og að sögn var það allt mjög gott.