Undirbúningur hafinn fyrir heimsókn vina okkar frá Noregi
Nú er formlegur undirbúningur hafinn fyrir komu vina okkar frá Ekrehagen-skole í Noregi. Sökum heimsfaraldursins eru nú komin 4 frá því þau heimsóttu okkar síðast, en venjan er að þau komi annað hvert ár. Árin sem þau koma ekki til okkar, förum við vanalega til þeirra, til Tromsø.
Þar sem stórt skarð hefur verið hoggið í heimsóknir okkar hafa nú liðið 3 ár frá því við hittumst seinast, þegar við heimsóttum þau vorið 2019, sælla minninga. Þeir nemendur sem fóru þá út eru nú allir útskrifaðir, flestir fyrir löngu síðan. Mikil vinna er því framundan við að byggja upp tengsl og við þökkum internetinu og samskiptamiðlum fyrir að greiða okkur leið til þess.
Við leyfum ykkur að fylgjast með undirbúningnum, en von er á hópnum í lok mars og þau verða hjá okkur í eina viku. Við munum bralla heilmargt saman og erum svakalega spennt fyrir heimsókninni.
Svo verður enn skemmtilegra hjá okkur á næsta ári, þegar við heimsækjum þau.


