Frábær árangur í forritunarkeppni grunnskólanna

Forritunarkeppni grunnskólanna og forritunarnámskeið í boði Tækniskólans fóru fram í febrúar síðastliðnum.
Rúmlega 40 grunnskólanemendur úr fjölmörgum skólum mættu í Tækniskólann og tóku ýmist þátt í forritunarnámskeiði eða forritunarkeppni. Nemendur á tölvubraut skólans voru með umsjón með viðburðinum í samstarfi við starfsfólk Tækniskólans
Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í forritunarkeppninni og hafnaði Ísak Dal Jónsson, nemandi í 10. bekk í Suðurhlíðarskóla í 3. sæti.  Aldeilis frábær árangur og óskum við honum til hamingju.
Úrslit kepninnar voru sem hér segir:
1. sæti – Dagur Ómarsson frá Skarðshlíðarskóla
2. sæti – Ingvar Zolotuskiy frá Landakotsskóla
3. sæti – Ísak Dal Jónsson frá Suðurhlíðarskóla

Ísak er hægra megin á myndinni.