Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó…
Það er fátt sem gleður meira á aðventunni en nýfallinn, hvítur snjór! Þvílík gleði meðal barnanna í frímínútum.
Á skólalóðinni rísa snjóhús, snjóvirki, snjókarlar og kerlingar, sleðar bruna niður brekkuna og að sjálfsögðu er hasar á snjóboltasvæðinu.
Við biðjum fyrir því að við fáum að halda snjónum fram yfir jól, hann færir svo mikla birtu og gleði.


