Sonja iðjuþjálfanemi

Síðastliðnar 7 vikur hefur Sonja Sigríður Gylfadóttir tekið hluta af starfsnámi sínu til iðjuþjálfa hér hjá okkur í Suðurhlíðarskóla. Hér hefur hún aðallega unnið með einstaka skjólstæðinga við að efla færni þeirra til náms, æft fínhreyfingar og fylgst með hvernig umhverfið/skólinn er styðjandi fyrir þá.

Sonja hefur, á tíma sínum hér, þjálfast í vinnu með börnum og sér mikla möguleika í því hverni hægt er að þjónusta börn í skólum.

Sonja er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast skólanum og starfsemi hans og hennar mat er að skólinn sé vel í stakk búinn til að sinna einstökum nemendum, sérstaklega þar sem við búum svo vel að því að hafa iðjuþjálfa hér í fullu starfi. Við í Suðurhlíðarskóla erum svo sannarlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Sonju og þökkum henni fyrir hennar störf hér sl. 7 vikur.

Við óskum henni alls hins besta í náminu fram að útskrift í vor, og að sjálfsögðu góðs starfsframa eftir það.