Jólaheimsókn í Hallgrímskirkju

2.-5. bekkur skólans fór í vikunni á sýninguna Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju og var virkilega vel tekið á móti okkur. Sýningin er mjög vel gerð og við mælum hiklaust með henni. Krakkarnir fengu að hlusta á orgelleik og syngja með, þau fengu umsögn um listaverkin í kirkjunni og fengu að upplifa jólin hans Hallgríms. Að lokum fengum við að fara upp í turn til að sjá fallega útsýnið yfir Reykjavík. Þetta var allt saman mikil upplifun.