Liltu jólin í skólanum og Kirkjujólin

Á morgun, fimmtudaginn 16. desember, tökum við upp Kirkjujólin okkar, því út af dálitlu verðum við að hafa þau rafræn í ár, líkt og í fyrra.

7.-10. bekkur heldur litlu jólin sín annað kvöld (fimmtudaginn 16. des) hér í skólanum. Mæting er kl. 18:00 og allir fara heim kl. 22:00. Við borðum veislumat og klæðum okkur upp, förum í alls konar leiki og gleðjumst saman. Það er skyldumæting og í staðinn fá unglingarnir frí á föstudaginn.

Á föstudaginn (17. des) heldur 2.-6. bekkur litlu jólin frá kl. 10:00-12:00. Nemendur mega koma spariklæddir með sparinesti (bakkelsi/smákökur og safa – ekki nammi og gos). Kósýkot verður opið samkvæmt venju, frá 7:45-16:00.

Kirkjujólin verða svo send út á YouTube á mánudaginn (21. desember) kl. 17:00.

Við óskum nemendum okkar og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og hlökkum til að sjá alla aftur þriðjudaginn 4. janúar 2022.