Góð jólagjöf frá skólanum til skólans

Hún kemur sér alveg svakalega vel, jólagjöfin sem skólinn ákvað að gefa sér sjálfum. Mikið erum við spennt að hefja heimilisfræðikennslu í stórbættri aðstöðu á nýrri önn, sem hefst eftir 2 vikur. Þessi nýja viðbót breytir öllu í heimilisfræðikennslunni, þar sem við vorum áður með einungis 2 vaska, 2 bakaraofna og 2 helluborð. Þá gat verið snúið að hafa 8-10 nemendur í heimilisfræði í einu, sérstaklega þar sem við leggjum upp úr að hafa helst aldrei fleiri en 2 nemendur saman í hverjum hóp, svo allir séu virkir þátttakendur.

Þessi nýja eining er ofsalega praktísk, falleg, stílhrein og móðins. Kennarar og nemendur eru himinsælir með gjöfina og geta ekki beðið eftir að nota hana. Einnig munu Kósýkot og Frístund hafa afnot af henni og því nýtist gjöfin margfalt.

Jón smiður og teymið hans nýttu dagana vel meðan skólinn var lokaður í jólafríinu og settu innréttinguna upp af mikilli natni og nákvæmni. Vinnubrögðin eru öll til fyrirmyndar!

Við höfum lagt inn ósk um 2 svona einingar í viðbót, því þannig getum við boðið upp á fyrirtaks kennsluaðstöðu í heimilisfræði fyrir 12 nemendur. Við höfum fengið vilyrði fyrir því frá skólanefnd og erum þeim óendanlega þakklát fyrir það!

Það skiptir okkur miklu máli að finna traustið og trúna sem skólanefndin hefur á skólanum, bænir ykkar allra og þakklæti fyrir því sem við gerum vel. Allur þessi stuðningur gerir okkur betri og styrkir okkur.

Við biðjum reglulega fyrir bættum aðbúnaði og því passar vel að deila með ykkur versi úr Matt. 7:7-8.

Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða.