Bollu- sprengi- og öskudagurinn: Hátíð í skólanum!
Það er svo gaman að geta gert sér dagamun – sérstaklega í gráum skammdegissuddanum, hálkunni og kuldanum sem hefur herjað á okkur undanfarið.
Við leggjum öllu jafna mikið upp úr þessum hátíðardögum hér í skólanum; unglingarnir baka vatnsdeigsbollur handa öllum á bolludag og við fáum fiskibollur í hádegismatinn. Á sprengidag matreiðir Kristjana dýrindis saltkjöt handa okkur og á öskudag er sprell og húllumhæ á sal og kötturinn sleginn úr tunnunni.
Gleðin hefur því verið mikil, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum:



