Opið hús í dag: Vísindi og tækni

Í dag verður opið hús fyrir foreldra og forráðamenn kl. 12:00 – 13:10.

Þar munu nemendur skýra frá tilraunum sem þau hafa gert í vinnustofunni Vísindi og tækni, sem hefur staðið yfir sl. 2 vikur.

Gestir fá tækifæri til að ganga á milli hópanna og ræða við nemendur.

Við vonumst til að sjá sem flesta.