Vísindi og tækni – lok vinnustofulotu og opið hús
Það var aldeilis glatt á hjalla í Suðurhlíðarskóla í dag. Covid er ekki lengur að þvælast fyrir, svo við gátum boðið foreldrum að kíkja á alveg stórkostlega vísindasýningu nemendanna. Það var svo gaman að hitta alla; líf og fjör, alveg eins og við viljum hafa það!
Allir nemendur skólans hafa sl. 7 vikur unnið með ýmsa þætti vísinda og tækniþróunnar, en síðustu 2 vikurnar voru helgaðar tilraunum og rannsóknum. Námsgleðin var alls ráðandi og spennan nánast áþreifanleg.
Mjög vinsælt var að nota efni eins og matarlit, edik, matarsóda, olíu, sápu og þurrrís í tilraunirnar, en auðvitað voru ýmis önnur efni notuð líka. Kannski munu krakkarnir halda áfram að æfa sig í eldhúsinu heima um helgina, en vonandi eru þau orðin mett í bili. Það er allavegana víst að áhuginn var svo sannarlega til staðar frá fyrsta degi og það verður spennandi að sjá hvers konar vísindamenn muni spretta úr þessum frábærlega færa hópi þegar fram líða stundir.
Kennarar skólans voru svakalega duglegir að mynda allt í bak og fyrir og því getum við deilt með ykkur þessari stórglæsilegu myndasýningu hér:


