Skólaslit og útskrift 2020
Skólaslit Suðurhlíðarskóla fara jafnan fram að kvöldi síðasta skóladags. Nemendur, foreldrar og aðrir nánir aðstandendur mæta þá prúðbúnir í hátíðarsal skólans og eiga þar saman góða stund.
Allir nemendur eru kvaddir með einkunnaspjaldi og rós en 10. bekkingarnir eru leystir út með gjöfum og vel undirbúnum kveðjuorðum.
Það er ávallt erfitt að kveðja flotta nemendur en það fylgir því einnig mikil gleði, því við vitum að handan við sumarið bíða þeirra ný og spennandi ævintýri í framhaldsskóla.
Í ár útskrifuðust frá okkur 5 þrusuflottir einstaklingar. Við munum sakna þeirra allra en óskum þeim alls hins besta í næstu ævintýrum.


