Starfsfólk skólans á GLS

Þátttaka á GLS, alþjóðlegu, kristilegu leiðtogaráðstefnunni, er orðin rótgróin hefð í starfsmannahóp Suðurhíðarskóla. Í ár var ráðstefnan með rafrænum hætti, svo við komum okkur vel fyrir í skólanum og leyfðum einhverjum bestu ræðumönnum okkar tíma að fylla á andlega tankinn okkar með fjölbreyttum erindum.

Við finnum hvað þátttaka í þessari ráðstefnu er mikilvæg fyrir okkur sem hóp og sem einstaklinga. Eftir heilan dag á GLS finnum við hversu efld og uppörvuð við erum að halda áfram því hugsjónarstarfi sem við vinnum hér í skólanum, þar sem við viljum leggja okkur fram um að mæta hverjum nemanda með kærleika og lausnum.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér GLS nánar er það hægt hér: https://gls.is/