Vorferð á Hlíðardalsskóla
Í dag leigðum við rútu og skunduðum með alla nemendur skólans í dagsferð á Hlíðardalsskóla. Það skiptir okkur miklu máli að kynna þennan dásamlega stað fyrir nemendum okkar og að þau læri snemma að þar sé gaman að vera.
Við skelltum okkur í pappabátakeppni, lékum okkur í íþróttahúsinu og úti á flöt, fórum í ratleik og borðuðum svakalega góða hamborgara og vöfflur sem unglingarnir göldruðu fram af svakalegri list. Veðrið lék við okkur og allir voru sælir, glaðir og þreyttir í rútunni á leiðinni heim.


