Sprengju-Steinunn með lifandi efnafræðikennslu
Eftir þungan bókalestur; fullt af nýjum hugtökum, kenningum og fróðleik í vinnustofu, var aldeilis skemmtilegt þegar Steinunn Theodórsdóttir smellti á sig ofnhönskum og framkvæmdi tilraun með þurrís og alkóhóli til að greina geimryk. Tilraunin heppnaðist alveg með ágætum en toppurinn var án efa þegar Steinunn bauð nemendum skólans upp á þurrís út í vatnið með hádegismatnum. Sjaldan hefur eins mikið vatn verið drukkið í skólanum í hádeginu – við ætluðum aldrei að koma sumum aftur í tíma því þeir voru svo uppteknir við áfyllingarnar.
Það er svo gaman að brjóta svona aðeins upp á hversdaginn og við bíðum spennt eftir að sjá hvað fleira Steinunn mun bjóða okkur upp á í áframhaldandi efnafræðilotu á næstu dögum og vikum.



