Heimsókn í Vísindasmiðju Háskóla Íslands
Við fórum í svo skemmtilega heimsókn í Vísindasmiðju Háskóla Íslands í tengslum við eðlisfræði-vinnustofuna okkar sem nú stendur yfir.
Fyrst fengum við fræðslu og tókum þátt í litlum tilraunum, svo fengum við að ganga laus um og prófa alls konar spennandi tæki og tól.
Það var varla hægt að ná krökkunum heim aftur, þau voru svo áhugasöm!




