Mílan
Alla mánudaga og fimmtudaga, fyrir mat, fara nemendur og starfsfólk skólans eina mílu. Í boði er að ganga, skokka eða hlaupa – hvað sem hverjum og einum hugnast.
Leiðin liggur frá skólalóðinni, í gegnum Fossvogskirkjugarð, út að grenndarskóginum okkar og meðfram sjónum aftur til baka í skólann. Leiðin er 1,6 km sem er akkúrat ein míla.

Mílan er farin í mörgum skólum um allan heim og þ.á.m. mörgum íslenskum skólum. Meiri upplýsingar um þetta alþjóðlega verkefni er hægt að finna hér: https://thedailymile.co.uk/.
9. & 10. bekkur og 6.-8. bekkur byrjuðu að fara míluna haustið 2020 en haustið 202 var mílunni bætt inn á stundarskrána allra nemenda skólans.
Matthías Guðni í 9. bekk og Trausti Theodór í 8. bekk eiga núverandi mílumet: 6 mílur (9,6 km) í einu matarhléi. Geri aðrir betur!

Myndir: Matthías Guðni Elínarson og Arna Rún Þórðardóttir

