Tónleikar skólakórsins í kvöld kl. 19:00

Loksins, loksins!
Tónleikar til styrktar kaupum á nýjum leiktækjum á skólalóðina: Fjáröflunartónleikar skólakórs Suðurhlíðarskóla verða kl. 19 í kvöld, miðvikudaginn 26. maí, og við deilum hlekknum að LIVE YOUTUBE upptöku á facebook nokkrum mínútum áður en tónleikarnir hefjast. Það geta allir fylgst með á netinu!
Einnig er hægt að finna tónleikana með því að:
-Fara inn á YOUTUBE.com
-Leita að „Adventkirkjan i Reykjavik“ https://www.youtube.com/channel/UCuiaZ2ezOU9pNEl-BgePy8g
-Spila nýjastu upptökuna sem heitir „Tónleikar skólakórs Suðurhlíðarskóla“ sem verður LIVE nokkrum mínútum áður en tónleikarnir hefjast kl. 19:00
Nemendurnir í skólakórnum eru að safna fyrir nýjum leiktækjum á skólalóðina og leiktækjasjóðurinn tekur á móti frjálsum framlögum á:
Reikning: 101-05-207272
Kt: 440169-3259
Munið að merkja gjöfina skólakórnum.
Hittumst LIVE á tónleikum í kvöld!