Holan

Holan var opnuð í dag! Og þvílíkt gull sem valt út úr henni!

En, hvað er Holan?

Holan var mokuð af nemendum og Hjördísi stærðfræðikennara. Í Holuna settum við eldivið, álpappír, sprek og gullfalleg leirlistaverk sem bæði nemendur og kennarar höfðu mótað sl. vikur undir leiðsögn og hvatningu Kristínar listgreinakennara.

Það var að mörgu að huga til að gera Holuna að veruleika. Slökkviliðið veitti okkur blessun sína og nemendur skiptust svo á að standa vaktina með listgreinakennaranum, því svona holu lætur maður ekki eftirlitslausa. Óli skógur hjálpaði okkur að kveikja í henni og vösk sveit nemenda sá svo um að tæma hana í dag.

Myndir segja meira en þúsund orð, svo endilega skoðið ferlið hér: