Nýr útibekkur í vinnslu
Sem betur fer eru ekki allir eins og krakkarnir hafa mismunandi áhugamál og hæfni. Það er algerlega frábært þegar nemendur finna sig í skapandi verkefnum sem gefa af sér til annarra. Gott dæmi um það er þegar 7. bekkingur tekur að sér að smíða bekki kringum eldstæðið.
Þessir drumbar eru ekki léttir og jarðvegurinn sem þeir eru festir í er grýttur og leiðinlegur, en mikið svakalega verður þetta huggulegt þegar þetta verður tilbúið!


