Jólaskreytinga- og jólapeysudagurinn

Fimmtudagurinn 25. nóvember var jólaskreytinga- og jólapeysudagurinn okkar hér í skólanum. Þá lögðum við allt hefðbundið nám til hliðar og dembdum okkur í jólaundirbúninginn. Niðurstaðan er mis-flóðlýstar stofur og jólaskraut hvert sem litið er. Bæði starfsfólk og nemendur eru orðin verulega spennt fyrir jólunum og því er þessi upplyfting kærkomin.

Stemningin var svo svakalega góð á þessum degi að við höfum ákveðið að taka smá af henni með inn í komandi vikur og ætlum að hafa alla föstudaga til jóla jólapeysu/jólasokkadaga.