Skautaferð nemendafélagsins

Fyrir jól stóð nemendafélagið fyrir skautaferð 8.-10. bekkjar í Egilshöll. Þar sem lítið hefur almennt verið um viðburði á vegum skólans og nemendafélagsins síðastliðin misseri var þetta kærkomin skemmtun.

Það var ágæt mæting; 5 strákar, 1 stelpa og 1 kennari.

Þessa dagana og vikurnar hefur nemendafélagið hægt um sig, bíður eftir bjartari dögum og yljar sér við góðar minningar.