Pangea stærðfræðikeppnin

Við bara verðum að monta okkur af því að í morgun fengum við þær skemmtilegu fréttir að 4 nemendur skólans hafi komist áfram í Pangea stærðfræðikeppninni.

Pangea stærðfræðikeppnin er haldin á hverri vorönn og þátttakendur eru nemendur 8. og 9. bekkja af öllu landinu.

Næsta próf verður lagt fyrir 17. mars og þá komast 40 hæstu nemendur hvors árgangs áfram í lokaúrslitin sem haldin verða með viðhöfn í vor.  Við bíðum alveg svakalega spennt eftir að sjá hvort einhverjir snillinganna okkar nái ekki alla leið þangað.

Við óskum umræddum nemendum hjartanlega til hamingju með árangurinn og sendum þeim okkar heillaóskir fyrir næstu umferð.