Siglingadagur skólans í boði Siglingaklúbbsins Ýmis

Við erum svo heppin að nágrannar okkar, Siglingaklúbburinn Ýmir, er skólanum einstaklega velviljaður og hefur boðið okkur í heimsókn til sín á hverju vori í 5 ár. Krakkarnir fá að prófa árabáta, kajak og mótordrifið tryllitæki (öryggis- og þjónustubátinn). Þeir hörðustu hoppa út í sjó, enda ekki neitt að óttast þegar maður er kominn í flotbúning og björgunarvesti!

Á þessum degi eru alltaf einhverjir nemendur sem stíga all rækilega út fyrir þægindarammann sinn og margir enda ljómandi af gleði ofan í sjónum, þar af margir sem voru kannski fyrirfram ekkert spenntir fyrir deginum.

Þessi dagur er einn ein leiðin sem við höfum fundið til að njóta sköpunarverksins á uppbyggjandi og gleðilegan hátt. Guð gaf okkur jörðina til að hugsa um hana og njóta hennar, í síðustu viku lærðum við heilmargt um hvernig við getum hugsað hana og nýtt á góðan hátt og í dag nutum við hennar svo sannarlega.