Kosningar

Þar sem Alþingiskosningar eru á næsta leiti eru þær þemað okkar í vinnustofum þessar vikurnar.

Yngstu krakkarnir lærðu allt um framkvæmd kosninga í liðinni viku, settu upp kjörseðla og kjörskrá og bjuggu svo til svakalega flottan kjörkassa. Samkvæmt reglum urðu allir að láta merkja við sig áður en þeir fengu kjörseðil og svo máttu þeir kjósa.

5.-10. bekkur höfðu kynnt sér flesta flokkana sem bjóða fram á Höfuðborgarsvæðinu og kynntu svo hver fyrir öðrum. Markmiðið var að krakkarnir kynntu sér stefnuskrá, kosningaloforð, listabókstaf, lógó og formann eða oddvita þess flokks sem þeir fengu úthlutað. Svo þurftu flokkarnir að kynna sinn flokk fyrir öllum hinum. Lögð var áhersla á hlutleysi í upplýsingaöflun og miðlun, líkt og góðu fréttafólki sæmir.

Það var svo alveg frábært að fylgjast með krökkunum skoða veggspjöldin eftir kynningarnar og komast að niðurstöðu hvert fyrir sig. Miklar umræður spunnust og margar spurningar kviknuðu. Kennarar skólans eru framar vonum ánægðir með niðurstöðuna, því þegar námið nær í gegn og krakkarnir fara að spá í verkefnunum frá öllum hliðum á gagnrýninn hátt, þá hefur kennslan skilað sér.

Talið verður úr kjörkassanum á mánudaginn, en þá munum við jafnframt byrja á næsta verkefni þar sem krakkarnir hópa sig sjálfir saman og búa til sína eigin flokka. Það verður spennandi að sjá afraksturinn frá þeirri vinnu!