Uncategorized

07 jan'22

Góð jólagjöf frá skólanum til skólans

Hún kemur sér alveg svakalega vel, jólagjöfin sem skólinn ákvað að gefa sér sjálfum. Mikið erum við spennt að hefja heimilisfræðikennslu í stórbættri aðstöðu á nýrri önn, sem hefst eftir 2 vikur. Þessi nýja viðbót breytir öllu í heimilisfræðikennslunni, þar sem við vorum áður með einungis 2 vaska, 2 bakaraofna og 2 helluborð. Þá gat…

Nánar
15 des'21

Liltu jólin í skólanum og Kirkjujólin

Á morgun, fimmtudaginn 16. desember, tökum við upp Kirkjujólin okkar, því út af dálitlu verðum við að hafa þau rafræn í ár, líkt og í fyrra. 7.-10. bekkur heldur litlu jólin sín annað kvöld (fimmtudaginn 16. des) hér í skólanum. Mæting er kl. 18:00 og allir fara heim kl. 22:00. Við borðum veislumat og klæðum…

Nánar
09 des'21

Jólaheimsókn í Hallgrímskirkju

2.-5. bekkur skólans fór í vikunni á sýninguna Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju og var virkilega vel tekið á móti okkur. Sýningin er mjög vel gerð og við mælum hiklaust með henni. Krakkarnir fengu að hlusta á orgelleik og syngja með, þau fengu umsögn um listaverkin í kirkjunni og fengu að upplifa jólin hans Hallgríms.…

Nánar
08 des'21

Sonja iðjuþjálfanemi

Síðastliðnar 7 vikur hefur Sonja Sigríður Gylfadóttir tekið hluta af starfsnámi sínu til iðjuþjálfa hér hjá okkur í Suðurhlíðarskóla. Hér hefur hún aðallega unnið með einstaka skjólstæðinga við að efla færni þeirra til náms, æft fínhreyfingar og fylgst með hvernig umhverfið/skólinn er styðjandi fyrir þá. Sonja hefur, á tíma sínum hér, þjálfast í vinnu með…

Nánar
01 des'21

Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó…

Það er fátt sem gleður meira á aðventunni en nýfallinn, hvítur snjór! Þvílík gleði meðal barnanna í frímínútum. Á skólalóðinni rísa snjóhús, snjóvirki, snjókarlar og kerlingar, sleðar bruna niður brekkuna og að sjálfsögðu er hasar á snjóboltasvæðinu. Við biðjum fyrir því að við fáum að halda snjónum fram yfir jól, hann færir svo mikla birtu…

Nánar
26 nóv'21

Jólaskreytinga- og jólapeysudagurinn

Fimmtudagurinn 25. nóvember var jólaskreytinga- og jólapeysudagurinn okkar hér í skólanum. Þá lögðum við allt hefðbundið nám til hliðar og dembdum okkur í jólaundirbúninginn. Niðurstaðan er mis-flóðlýstar stofur og jólaskraut hvert sem litið er. Bæði starfsfólk og nemendur eru orðin verulega spennt fyrir jólunum og því er þessi upplyfting kærkomin. Stemningin var svo svakalega góð…

Nánar
24 nóv'21

Kosningar nemenda til skólaráðs

Á dögunum kusu nemendur skólans sína fulltrúa í skólaráð. Ákveðið var að nemendur 2.-7. bekkjar kysu sér einn aðalfulltrúa og einn varafulltrúa og nemendur 8.-10. bekkjar kysu sér sömuleiðis einn aðalfulltrúa og annan til vara. Hart var slegist um sætin sem í boði voru og leitt að ekki gátu allir fengið sæti sem buðu sig…

Nánar
23 nóv'21

Ný stjórn nemendafélagsins

Í síðustu viku gengu nemendur 8.-10. bekkjar lokst til kosninga og kusu fulltrúa sína í stjórn nemendafélagsins. Nemendafélagið á að sjá um skemmtilega viðburði innan og utan skóla, fyrir nemendur á öllum skólastigum. Mest áhersla hefur þó verið lögð á viðburði fyrir 8.-10. bekk undanfarin ár og svo mun vera áfram. Meðal stærstu verkefnanna sem…

Nánar