Útikennsla
Veðrið hefur leikið við okkur nú í maí og við stóðumst ekki mátið að skella okkur út og grilla brauð á greinum um daginn. Við sungum upp úr Skátasöngvum, undir styrkri stjórn nemanda 5. bekkjar og undirtektir voru afbragðs góðar. Fyrsta vikan í júní verður alfarið helguð útikennslu. Þá förum við m.a. í skóginn, brennum…
NánarTónleikar skólakórsins, miðvikudaginn 26. maí
Skólakór Suðurhlíðarskóla mun, ásamt gömlum nemendum, halda fjáröflunartónleika 26. maí kl. 19:00. Tónleikunum verður streymt á heimasíðu skólans. Endilega takið daginn frá og mætið á tónleika skólakórs Suðurhlíðarskóla heima í stofu. Við erum að safna fyrir nýju leiktæki á skólalóðina og tökum á móti frjálsum framlögum. Reikningur:101-05-207272, kennitala: 440169-3259 Vinsamlegast merkið gjöfina: Skólakór.
NánarPáskakveðja
Kæru foreldrar/ forráðamenn. Íþróttadagurinn og árshátíðin gengu ljómandi vel. Eins og öðrum grunnskólum á landinu var okkur gert að loka tveimur dögum fyrr en áætlað var, þannig að páskaföndrið verður að bíða betri tíma. Við óskum ykkur gleðilegra páska! Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. apríl. Þriðjudaginn 6. apríl er starfsdagur samkvæmt skóladagatali. …
NánarSkólahald fellur niður á morgun og föstudag
Samkvæmt fyrirmælum almannavarna fellur allt skólahald niður fram að páskum, svo hér verður enginn skóli á morgun og föstudag. Nánari upplýsingar um skólastarf eftir páska verða sendar út um leið og þær berast okkur, í kvöld eða á morgun. According to instructions from the Civil Protection Committee (Almannavarnir), all schools will be closed tomorrow,…
NánarSkemmtileg frétt í Krakkafréttum um Suðurhlíðarskóla
Í Krakkafréttum í dag var sagt frá skemmtilegu verkefni sem nemendur og starfsfólk Suðurhlíðarskóla tók þátt í. Endilega skoðið fréttina. við tækifæri. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/krakkafrettir/24081/94shte
NánarÞakkir frá Samhjálp
Við fengum skemmtilegan póst frá Samhjálp sl. föstudag og fengum leyfi til að deila honum áfram. Við viljum að þakkirnar berist öllum þeim sem tóku þátt í verkefninu með okkur – með matargjöfum, vinnuframlagi, bænum eða annars konar stuðningi. Hæ hæ Mig langaði bara að deila með ykkur morgunmatunum þennan morguninn hér á Kaffistofunni. Ómæææ…
NánarPerluverkefni 6.-10. bekkjar
Stærðfræði getur heldur betur verið skapandi, litrík og skemmtileg. Verkefni vikunnar hjá 6.-10. bekk var að búa til Perluna. Útfærslan var alveg frjáls og unnið var í litlum hópum svo útkoman varð allavegana. Einhverjir metnaðarfullir völdu að baka Perluna og skreyta, aðrir gerðu úr leir, sumir úr pappír og enn aðrir notuðu heldur óhefðbundnari hráefni.…
NánarOrð í verki
Eitt af megingildum Suðurhlíðarskóla er þjónusta. Þess vegna höfum við innleitt 3 góðverkadaga undir heitinu Orð í verki, en þá vinnur allur skólinn saman að ákveðnu verkefni í þjónustu við samfélagið. Í ár ákváðum við að styrkja Samhjálp, sem vinnur virkilega göfugt starf alla daga í þjónustu við þá sem minna mega sín. Dásemdin okkar hún…
NánarStóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin er viðburður sem nemendum 7. bekkja á öllu landinu hefur staðið til boða að taka þátt í síðan 1996. Suðurhlíðarskóli tók þátt í keppninni í ár, fimmtudaginn 11. mars í Háteigskirkju. Lesararnir okkar voru Jóhann Már og Kristíana Keren, en þau sigruðu innanhússkeppnina í skólanum okkar, sem haldin var fyrir stuttu. Keppnin fór…
NánarLestrarömmurnar mættar aftur til starfa
Í dag mættu lestrarömmurnar okkar aftur í skólann eftir alltof langa útlegð af völdum kórónuveirunnar. Lilja skólastjóri og Tobba kennari tóku vel á móti þeim og greinilega mátti sjá á fundargestum að allir voru glaðir og spenntir yfir því að geta tekið upp þráðinn að nýju. Suðurhlíðarskóli væri ekki það sem hann er án okkar…
Nánar
