Fréttir
Orð í verki – ADRA söfnun fyrir Eþíópíu og Úkraínu kl. 18-20 miðvikudaginn 21.9.2022
Suðurhlíðarskóli leggur ríka áherslu á samfélagsþjónustunám og á hverjum vetri tökum við þátt í 3 stórum verkefnum með það að markmiði að láta gott af okkur leiða. Það er okkur svo mikilvægt að allir átti sig á að þeir geta hjálpað – og margt smátt getur gert kraftaverk. Fyrsta samfélagsþjónustuverkefnið stendur yfir þessa dagana, en…
NánarPáskakveðja
Kæru foreldrar/ forráðamenn. Íþróttadagurinn og árshátíðin gengu ljómandi vel. Eins og öðrum grunnskólum á landinu var okkur gert að loka tveimur dögum fyrr en áætlað var, þannig að páskaföndrið verður að bíða betri tíma. Við óskum ykkur gleðilegra páska! Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. apríl. Þriðjudaginn 6. apríl er starfsdagur samkvæmt skóladagatali. …
NánarSkemmtileg frétt í Krakkafréttum um Suðurhlíðarskóla
Í Krakkafréttum í dag var sagt frá skemmtilegu verkefni sem nemendur og starfsfólk Suðurhlíðarskóla tók þátt í. Endilega skoðið fréttina. við tækifæri. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/krakkafrettir/24081/94shte
NánarÞakkir frá Samhjálp
Við fengum skemmtilegan póst frá Samhjálp sl. föstudag og fengum leyfi til að deila honum áfram. Við viljum að þakkirnar berist öllum þeim sem tóku þátt í verkefninu með okkur – með matargjöfum, vinnuframlagi, bænum eða annars konar stuðningi. Hæ hæ Mig langaði bara að deila með ykkur morgunmatunum þennan morguninn hér á Kaffistofunni. Ómæææ…
NánarOrð í verki
Eitt af megingildum Suðurhlíðarskóla er þjónusta. Þess vegna höfum við innleitt 3 góðverkadaga undir heitinu Orð í verki, en þá vinnur allur skólinn saman að ákveðnu verkefni í þjónustu við samfélagið. Í ár ákváðum við að styrkja Samhjálp, sem vinnur virkilega göfugt starf alla daga í þjónustu við þá sem minna mega sín. Dásemdin okkar hún…
NánarStóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin er viðburður sem nemendum 7. bekkja á öllu landinu hefur staðið til boða að taka þátt í síðan 1996. Suðurhlíðarskóli tók þátt í keppninni í ár, fimmtudaginn 11. mars í Háteigskirkju. Lesararnir okkar voru Jóhann Már og Kristíana Keren, en þau sigruðu innanhússkeppnina í skólanum okkar, sem haldin var fyrir stuttu. Keppnin fór…
NánarStóra upplestrarkeppnin í Suðurhlíðarskóla
Í vikunni var Stóra upplestrarkeppnin haldin hér í Suðurhlíðarskóla. Tveir nemendur og einn til vara voru valdir úr góðum hópi til að keppa fyrir hönd skólans gegn 14 nemendum úr 8 öðrum skólum hverfisins, þann 11. mars í Háteigskirkju. Nú taka við miklar æfingar hjá þessum krökkum og við eigum ekki von á öðru en…
NánarFerðamálaval
Fimmtudaginn 28. janúar fengu nemendur í 9. og 10. bekk að heimsækja Björgunarsveitina Ársæl. Sigurður Jónson og Svanhvít Helga Rúnarsdóttir tóku á móti okkur. Farið var yfir starfsemi sveitarinnar og nemendur fengu að skoða bifreiðar og annan útbúnað. Það var gaman að sjá hversu áhugasamir nemendur voru og duglegir að spyrja. Við þökkum Björgunarsveitinni Ársæli…
NánarTextílverk á ganginum
Okkur þykir svo gaman að monta okkur af duglegu nemendunum okkar. Í glerskápnum á ganginum hefur nýsaumuðum dýrum þeirra verið stillt upp svo við getum notið þeirra hér í skólanum. Þar sem foreldrar og utanaðkomandi eru víst ekki velkomnir inn í bygginguna (nema undir ströngum skilyrðum) getið þið notið sýningarinnar á meðfylgjandi myndum.
NánarJól í skókassa 2020
Líkt og fyrri ár tók Suðurhlíðarskóli þátt í verkefninu Jól í skókassa. Jól í skókassa er verkefni á vegum KFUM&KFUK sem gengur út á að fá fólk til að útbúa jólagjöf handa barni í Úkraínu, en þar glíma margir við sára fátækt, mörg börn búa á munaðarleysingjaheimilum og allt of mörg börn þar fá enga…
Nánar
