Ný stjórn nemendafélagsins
Í síðustu viku gengu nemendur 8.-10. bekkjar lokst til kosninga og kusu fulltrúa sína í stjórn nemendafélagsins. Nemendafélagið á að sjá um skemmtilega viðburði innan og utan skóla, fyrir nemendur á öllum skólastigum. Mest áhersla hefur þó verið lögð á viðburði fyrir 8.-10. bekk undanfarin ár og svo mun vera áfram. Meðal stærstu verkefnanna sem…
NánarOrð í verki – Jól í skókassa
Þessa vikuna hefur samhyggð og kærleikur flætt áþreifanlega um skólabygginguna í formi skókassa, gjafapappírs, tannbursta, leikfanga, sápustykkja, bangsa og alls kyns varnings sem nemendur skólans hafa látið af hendi rakna til að gleðja fátæk börn í Úkraínu um jólin, í gegnum verkefnið Jól í skókassa. Við höfum haft þann háttin á að nemendur koma með…
NánarBjössi sax í heimsókn
Á dögunum fengum nemendur 2.-6. bekkjar skemmtilega heimsókn í tónmenntatíma frá Birni Kristinssyni saxófónleikara, sem oftast gengur undir nafninu Bjössi sax. Björn kynnti hljóðfærið sitt, í hvaða flokki hljóðfæra það er, hvernig það virkar og hvernig það hljómar. Krakkarnir fengu að spila með honum og spyrja hann spurninga um hljóðfærið og tónlist. Það var gaman…
NánarOpið hús
Við fögnuðum komandi haustfríi með því að leyfa nemendum okkar að bjóða nánustu fjölskyldu á opið hús í skólanum. Þar fluttu nemendurnir kynningar á verkefnum og sýndu ýmsan afrakstur þess sem þau hafa unnið að frá skólabyrjun. Það var alveg frábært að geta loksins boðið foreldrum, systkinum og ömmum og öfum að kíkja inn fyrir…
NánarBleikur dagur
Í dag var Bleikur dagur um allt land. Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að klæðast bleiku svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Bleikur litur gefur mikla gleði og andrúmsloftið í skólanum var létt og skemmtilegt, ekki annað hægt þegar gangarnir eru fullir af alls konar bleikum…
NánarFélagsmiðstöðin
Félagsmiðstöð skólans er opin alla mánudaga-fimmtudaga og þar er ýmislegt brallað. Í vikunni voru krakkarnir með SPA og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var það alveg æðislegt og krakkarnir nutu þess svo sannarlega að dekra aðeins við sig og njóta.
NánarOrð í verki – ADRA söfnunin
Í vikunni höfum við lært heilmargt um Mjanmar. Margt þar er mjög ólíkt Íslandi; t.d. eru sala á börnum, barnaþrælkun og barnahjónabönd staðreynd í Mjanmar og bilið milli ríkra og fátækra / sveita og borga er svakalega mikið. Besta leiðin til að hjálpa þeim fátækustu er með menntun. ADRA (alþjóðlegt hjálparstarf Kirkju sjöunda dags aðventista)…
NánarOrð í verki – ADRA
Á mánudaginn hófust þemadagar hjá okkur og er þemað eitt af þeim samfélagsverkefnum sem við vinnum í skólanum undir yfirskriftinni Orð í verki og tengist einnig markmiðum Sameinuðu þjóðanna – Öll börn í öllum löndum í skóla! Þetta þema vinnum við í samstarfi við ADRA, sem er alþjóðlegt hjálparstarf Aðvenkirkna. Í ár hefur ADRA sett…
NánarHeimsóknir á Alþingi
Það hefur verið líf og fjör í skólanum í kringum kosninga-vinnustofuna sem hefur staðið yfir undanfarnar vikur. Hóparnir eru í óða önn að undirbúa sínar eigin kosningar og segja má að hiti sé farinn að færast í leikinn hjá mörgum. Það var kærkomið eftir alla innivinnuna að bregða okkur af bæ, í vettvangsferð á Alþingi.…
NánarStarfsdagur kennara þriðjudaginn 14. september
Við minnum foreldra á að þriðjudaginn 14. september er starfsdagur kennara. Kósýkot verður opið fyrir nemendur í 1.-4. bekk og unglingarnir sem eru í ferðavali eiga að mæta kl. 8:30 því þeir eru að fara í dagsferð í Landmannalaugar.
Nánar
